Þegar áreynsla hættir að virka
Margar konur á miðjum aldri gera margt rétt.
Við hreyfum okkur.
Við pössum mataræðið.
Við reynum að sofa betur.
En samt finnum við margar að líkaminn svarar ekki lengur eins og áður.
Orkan verður óstöðug.
Bati tekur lengri tíma.
Efnaskiptin breytast.
Þetta er sjaldnast spurning um viljastyrk.
Líkaminn starfar einfaldlega eftir merkjum.
Og þegar merkin sem líkaminn les fara úr takt hægir hann á aðlögun.
Fyrsta skrefið: Að skilja kerfið þitt
Áður en við breytum einhverju þurfum við að sjá skýrt hvernig líkaminn starfar í dag.
Fyrst færðu skýra mynd af því hvernig kerfið þitt starfar í dag — og hvaða merki líkaminn þinn er í raun að lesa.
Við skoðum meðal annars:
• orku og þreytu
• svefn og dagstaktinn þinn
• streitumynstur
• næringu og efnaskipti
• endurheimt og aðlögun líkamans
Þessi greining gefur skýra mynd af því hvar merkin í kerfinu eru úr takt.
Endurstilling merkjanna
Þegar við höfum þessa mynd getum við byrjað að vinna markvisst með breytingar.
Við stillum meðal annars:
• svefn og dagstaktinn
• styrktarþjálfun og hreyfingu
• næringu og prótein
• streitu og taugakerfi
• bata og endurheimt
Markmiðið er að láta kerfin vinna saman aftur.
Þegar merkin fara að styðja hvort annað byrjar líkaminn smám saman að gera það sem hann kann best- að aðlagast.
Fyrir hverja er þetta
Þetta prógramm er fyrir konur sem:
• vilja skilja líkamann sinn betur
• vilja byggja upp orku og styrk á ný
• vilja hætta að reyna meira og byrja að vinna með líkamann.!
Næsti hópur
Ég tek aðeins inn takmarkaðan hóp kvenna í hvert skipti, svo hægt sé að vinna þessa vinnu af alvöru.
Undirbúningsvikan fyrir næsta hóp hefst fljótlega.
Ef þú finnur að þessi nálgun talar til þín getur þú sótt um þátttöku hér

