Þegar þú færð orkuna aftur - hvert fer hún?
Árangurinn sem þú þekkir
Ég hef oft talað um árangur kvenna í prógramminu mínu.
Meiri orku.
Meiri styrk.
Betri svefn.
Skýrari hugsun.
Konur sem finna aftur kraft sem þær héldu jafnvel að væri farinn.
En það er önnur hlið
En það er önnur hlið á umbreytingu sem við tölum miklu minna um.
Augnablikið þegar þú áttar þig á því hvað hafði hægt og rólega breyst.
Sjálfsmyndin er lífseig
Í huganum ertu enn hún
Myndin sem við höfum af okkur sjálfum er ótrúlega lífseig.
Í huganum geturðu enn hlaupið hratt.
Hoppað.
Rifið þig upp af gólfinu.
Gefið allt í botn í 30 sekúndur.
Þú ert enn þessi kona í þínum huga.
Svo reynirðu
Svo einn daginn reynirðu.
Og hugsar:
„Bíddu aðeins. Ég hélt ég gæti þetta ennþá.“
Hljóðláta breytingin
Ekki eitt augnablik — heldur þróun
Kannski þekkir þú þetta ekki úr einhverju einu stóru augnabliki.
Kannski hefurðu bara hægt og rólega farið að hugsa þig meira um.
Hef ég orku í þetta?
Hvernig verð ég á morgun?
Mun líkaminn ráða við þetta?
Áður fórstu — nú meturðu kostnaðinn
Áður bara fórstu.
Núna ertu stundum farin að meta kostnaðinn.
Og það getur hitt dýpra en við gerum okkur grein fyrir.
Viljinn er enn til staðar
Þú ert enn þú.
En þú treystir kannski ekki lengur alveg sjálfkrafa á að líkaminn fylgi með.
Sannleikurinn sem kemur í ljós þegar þú byrjar að byggja þig upp
Þá sérðu hvað hafði tapast
Stundum er það ekki fyrr en kona byrjar að byggja sig upp sem hún sér skýrar hvað hafði hægt og hljóðlega tapast í amstri síðustu ára.
Og já.
Það getur fylgt því sorg.
Þessi hljóðláta hugsun:
„Ég hélt ég gæti þetta ennþá.“
En hér vil ég stoppa þig
Því þetta þarf ekki að vera sagan þín.
Líkaminn er aðlögunarkerfi
Hann heldur í það sem þú biður hann um
Líkaminn er aðlögunarkerfi.
Hann aðlagast því sem við biðjum hann um.
Ef við hættum að nota styrkinn fær kerfið sífellt færri skilaboð um að halda í hann.
Ef við hættum að þjálfa kraftinn minnkar hann.
Ef við hættum að ögra jafnvægi, hreyfigetu og úthaldi aðlagast líkaminn líka að því.
Við sendum kerfinu alltaf skilaboð.
Spurningin er:
Hvaða getu ertu að biðja það um að halda í?
Þess vegna byggjum við upp getuna
Ekki bara form — heldur framtíðargetu
Þetta er ástæðan fyrir því að ég tala svona mikið um að byggja upp getuna í kerfinu.
Ekki bara að léttast.
Ekki bara að „komast í form“.
Heldur að eiga styrkinn, orkuna og líkamlegu getuna sem þú þarft til að lifa lífinu sem þú sérð enn fyrir þér.
Næstu 20.
30.
40 árin.
En svo gerist eitthvað sem ég sé aftur og aftur
Við byggjum upp orkuna — og gefum hana strax frá okkur
Við byggjum upp orkuna.
Og svo gefum við hana frá okkur aftur.
Kona sefur loksins betur.
Hvað gerir hún?
Hún bætir verkefnum inn í daginn.
Hún fær orkuna aftur.
Hvað gerir hún?
Hún tekur meira að sér.
Hún verður sterkari.
Hvað gerir hún?
Hún ber meira.
Meiri geta → meiri afköst → fyrir alla aðra
Meiri orka.
Meiri geta.
Meiri afköst.
Fyrir alla aðra.
Og við köllum þetta jafnvel árangur.
En er þetta raunveruleg uppbygging?
En erum við nokkuð að byggja konu upp ef öll nýja getan fer strax aftur í að halda öllu öðru gangandi?
Gallup–Hologic könnunin staðfestir þetta
Konur vita að heilsan skiptir máli — en þær eru uppteknar
Þegar ég sá niðurstöður Gallup–Hologic könnunar meðal 4.001 bandarískrar konu hugsaði ég:
Auðvitað.
63% sögðu að þær ættu erfitt með að setja eigin heilsu í forgang.
Af þeim sem áttu erfitt með það sögðu 72% að það væri yfirþyrmandi.
58% sögðu þarfir fjölskyldunnar ganga fyrir.
54% sögðust ekki hafa nægan tíma.
51% sögðu vinnuna standa í vegi.
Þetta eru ekki konur sem vita ekki að heilsan skiptir máli.
Þær eru uppteknar við að halda öllu öðru gangandi.
Stundum er áskorunin mín önnur
Ekki að byggja orkuna — heldur að forgangsraða henni
Stundum er áskorunin mín ekki að hjálpa konu að fá meiri orku.
Við getum bætt svefninn.
Byggt upp styrkinn.
Gefið líkamanum næringu og áreiti sem hann getur aðlagast.
Byggt upp getuna í kerfinu aftur.
Stærri áskorunin er þessi
Stundum er stærri áskorunin að hjálpa henni að hætta að gefa alla nýju orkuna frá sér um leið og hún kemur.
Umbreytingin er ekki bara að ráða við meira
Heldur að eiga meira eftir
Við erum ekki að bæta svefninn svo þú getir kreist fleiri verkefni inn í daginn.
Við erum ekki að byggja upp styrkinn svo þú getir borið enn meira fyrir alla aðra.
Við erum ekki að byggja upp orkuna svo þú getir unnið meira þar til kerfið tæmist aftur.
Umbreytingin getur ekki bara snúist um að þú ráðir við meira.
Hún þarf líka að snúast um að þú eigir meira eftir.
Meira eftir til að lifa. Meira eftir til að njóta. Meira eftir til að gera hluti af því að þig langar — ekki bara af því að einhver þarf á þér að halda.
Og hugsaðu aðeins um þetta
Enginn sem elskar þig vill sjá þig tæmast
Enginn sem elskar þig vill sjá þig hægt og rólega missa styrkinn, orkuna og getuna sem þú þarft fyrir næstu 20, 30 og 40 ár.
Enginn sem elskar þig vill að þú sért alltaf síðust.
En þú þarft að hætta að samþykkja það
Kannski er þetta hluti umbreytingarinnar sem við höfum talað allt of lítið um.
Ekki bara að byggja upp orkuna
Heldur að læra að eiga hana
Ekki bara að verða sterkari.
Ekki bara að fá getuna aftur.
Heldur að læra að eiga orkuna þegar hún kemur.
Markmiðið er ekki að verða kona sem ræður við meira.
Markmiðið er að byggja upp konu sem á meira eftir af sjálfri sér.

