Ókeypis vinnustofa fyrir konur á miðjum aldri sem vilja skilja hvað hefur raunverulega breyst – og hvernig skýrari skilningur leiðir til betri ákvarðana um eigin heilsu.

AÐ SKILJA LÍKAMANN BREYTIR ÖLLU

Ókeypis vinnustofa – 13. Ágúst

Við vitum meira um heilsu en nokkru sinni fyrr.

Við vitum meira um heilsu en nokkru sinni fyrr.

Við höfum aðgang að rannsóknum, hlaðvörpum, bókum, sérfræðingum, mataræðisráðum og æfingakerfum.

Samt heyri ég sömu setninguna aftur og aftur:

„Ég veit bara ekki lengur hvað á við um mig.“

Ekki vegna þess að konur skorti upplýsingar. Heldur vegna þess að meiri upplýsingar hafa ekki gert ákvarðanirnar skýrari.

Við höfum lært að hugsa um líkamann í bútum.

  • Svefn.

  • Hormón.

  • Næring.

  • Hreyfing.

  • Streita.

En líkaminn vinnur ekki þannig.

Hann er flókið, aðlögunarhæft kerfi þar sem allt hefur áhrif á allt — og það sem gerir heilsu kvenna einstaka er að líkaminn er ekki stöðugur.

Hann breytist:

með aldrinum.

með hormónasveiflum.

með streitu.

með svefni.

með lífsaðstæðum.

Þess vegna getur það sem virkaði fyrir nokkrum árum hætt að virka í dag. Ekki vegna þess að þú hafir brugðist — heldur vegna þess að líkaminn hefur breyst.

Það er engin ein lausn sem hentar öllum.

Líffræðin fylgir sömu lögmálum — en hvernig þau birtast hjá hverri konu er einstaklingsbundið.

Þess vegna snýst góð heilsa ekki um að finna „réttu regluna“. Heldur um að skilja hvernig þinn líkami bregst við og hvaða aðstæður hjálpa honum að dafna.

Þegar skilningurinn eykst verða ákvarðanirnar skýrari.

Þess vegna varð þessi vinnustofa til.

Ekki til að bæta við fleiri reglum. Heldur til að bjóða upp á aðra nálgun til að skilja líkamann.

Við skoðum hvernig líffræði, taugakerfi, hormón, svefn, næring, styrktarþjálfun og daglegt líf tengjast sem ein heild.

Ekki til að gera lífið flóknara — heldur til að gera ákvarðanirnar einfaldari.

Að vinnustofunni lokinni muntu…

✓ Skilja hvers vegna líkaminn svarar öðruvísi en áður.

✓ Sjá hvernig svefn, streita, hormón, næring og hreyfing hafa stöðugt áhrif hvert á annað.

✓ Skilja hvers vegna sama ráð virkar ekki alltaf fyrir allar konur.

✓ Geta tekið markvissari ákvarðanir sem byggja á þínum líkama en ekki almennum reglum.

✓ Fá nálgun sem er sérsniðin að þörfum kvenna á miðjum aldri og hjálpar þér að byggja upp meiri orku, meiri styrk og betri heilsu til lengri tíma.

Þessi vinnustofa er fyrir þig ef…

• Þú vilt skilja áður en þú breytir.

• Þú ert orðin þreytt á misvísandi ráðum.

• Þú hefur áhuga á vísindum en vilt fá þau útskýrð á mannamáli.

• Þú vilt byggja upp heilsu sem endist – ekki bara næstu vikurnar.

• Þú vilt taka ákvarðanir af meira öryggi og minni óvissu.

Kannski þarftu ekki fleiri upplýsingar.

Kannski þarftu nýja nálgun til að skilja þær upplýsingar sem þú hefur nú þegar.

Því þegar skilningurinn breytist…

breytast ákvarðanirnar.

Og þegar ákvarðanirnar breytast…

breytist heilsan.

Skráðu þig í ókeypis Vinnustofu

Upplýsingar

Tímasetning: Fimmtudagurinn 13. ágúst

kl 19:00

Online / Zoom

Ókeypis

Þegar sama aðferð skilar minni niðurstöðu - er lausnin sjaldnast meira af því sama.

Hún felst í því að skilja kerfið sem stýrir árangrinum.

Þessi vinnustofa er upphafið að þeirri endurstillingu.

Previous
Previous

Ekki viss hvar þú átt að byrja?