Hreyfing á miðjum aldri
Hvað virkar í alvöru og hvers vegna
Við eldumst allar. En við höfum miklu meiri áhrif á það hvernig við eldumst en flestar konur gera sér grein fyrir. Líkaminn er ekki aðeins að eldast, hann er stöðugt að aðlagast. Spurningin er ekki bara hvað tíminn tekur frá okkur, heldur hvaða getu við veljum að varðveita, efla og byggja upp.
Lærðu hvað er mögulegt og hvernig þú getur haft áhrif.
Ókeypis vinnustofa – 19. nóvember
veldu vel
Árangur þarf ekki að kosta allt þitt pláss, alla þína orku eða allan þinn tíma.
Á miðjum aldri verður sífellt mikilvægara að velja vel. Flestar konur hafa hvorki tíma né orku til að gera allt sem sagt er að skipti máli. Þess vegna skiptir svo miklu máli að vita hvar áhrifin eru mest. Þegar þú veist hvað skiptir mestu máli fyrir þinn líkama og þín markmið geta markvissar aðgerðir haft meiri áhrif en þú heldur.
Það sem flestar konur sjá ekki
Við sjáum hreyfinguna. En það sem skiptir mestu máli gerist undir yfirborðinu.
Í hvert sinn sem við hreyfum okkur fær líkaminn skilaboð um hvernig við ætlum að lifa. Þá fer af stað ótrúleg keðjuverkun. Hann lagar, endurnýjar, styrkir og aðlagar sig stöðugt að þeim kröfum sem lífið gerir til okkar.
Það er þessi hlið mannslíkamans sem heillar mig mest. Ekki hreyfingin sjálf, heldur það sem hún vekur til lífs. Og það er einmitt það sem mig langar að sýna þér í þessari vinnustofu.
Að vinnustofunni lokinni munt þú…
Sjá hreyfingu með nýjum augum.
Ekki sem eitthvað sem þú „ættir“ að gera heldur sem eitt áhrifamesta tækið sem þú hefur til að hafa áhrif á framtíðarheilsuna þína.
✓ Sjá skýrar hvar þú getur haft mest áhrif.
✓ Vita betur hvaða breytingar eru þess virði að verja tíma, orku og athygli í.
✓ Treysta betur þeim ákvörðunum sem þú tekur fyrir heilsuna þína.
✓ Ganga út með meiri trú á það sem líkaminn þinn er enn fær um.
Og kannski það mikilvægasta af öllu...
Þú munt sjá að framtíðin er ekki eitthvað sem bara gerist.
Hún mótast af þeim ákvörðunum sem þú tekur í dag.
Og þú hefur meiri áhrif á hvernig þú eldist en þú gerir þér líklega grein fyrir.
Upplýsingar
Tímasetning: Fimmtudagurinn 19. Nóvember
kl 19:00
Online / Zoom
Ókeypis
„Ég gerði mér ekki grein fyrir því hversu mikil áhrif ég gat haft á eigin heilsu fyrr en ég skildi hvernig líkaminn virkar.“ Halldóra Jónsdóttir

