Þegar meira átak skilar minni árangri
Á vinnustofunni á fimmtudaginn ætlum við m.a. að skoða eitt mynstur sem margar konur byrja að taka eftir á ákveðnum tímapunkti.
Við leggjum okkur meira fram —
en árangurinn virðist kosta meira en áður.
Flestar konur sem koma til mín á þessum tímapunkti eru ekki að gera minna.
Þær eru að leggja sig meira fram en áður.
Meiri einbeiting.
Meiri agi.
Þú ert enn öguð.
Þú ert enn skipulögð.
Þú ert enn að gera það sem áður virkaði.
En eitthvað í kerfinu svarar öðruvísi.
Flestar konur spyrja þá:
„Á ég bara að leggja mig meira fram?“
En stundum er spurningin ekki um meira átak.
Stundum er spurningin um
hvað í líkamanum er farið að stjórna niðurstöðunum.
1. Líkaminn fer að verja orkuna sína
Líkaminn er ekki bara vél sem svarar áreiti.
Hann er kerfi sem stýrir og forgangsraðar orku.
Þegar streita hefur verið til staðar lengi fer líkaminn stundum að setja meiri orku í:
• varnir
• viðhald
• streituviðbrögð
og minna í:
• efnaskipti
• bata
• framfarir
Þá getur sama átak kostað meira.
Það getur birst sem:
• minni bati eftir æfingar
• meiri þreyta eftir vinnudag
• meiri sveiflur í orku yfir daginn
💡 En hvernig þekkir maður merkin þegar líkaminn fer að vinna svona?
2. Streitukerfið tekur meira pláss
Líkaminn getur orðið mjög góður í að takast á við álag.
En á sama tíma verri í að endurheimta sig.
Þá segja margar konur mér að þær finni fyrir:
• léttari svefni
• meiri þreytu yfir daginn
• meiri kostnaður við einbeitingu
Þær eru enn sterkar.
Þær halda áfram.
En kerfið er farið að vinna öðruvísi.
💡 Hvað þarf þá að breytast svo líkaminn nái aftur jafnvægi milli álags og endurheimtar?
3. Sama hegðun skilar öðrum niðurstöðum
Það sem áður virkaði:
• sama æfing
• sama skipulag
• sama nálgun
fer að hafa minni áhrif.
Ekki vegna þess að þú sért að gera eitthvað rangt.
Heldur vegna þess að forsendurnar í kerfinu hafa breyst.
Og þegar það gerist breytist líka leiðin fram á við.
💡En hvaða breyting skiptir þá raunverulega mestu máli?
Það er einmitt það sem við ætlum að skoða
Á vinnustofunni á fimmtudaginn ætlum við að skoða þetta nánar.
Ekki bara hvað hefur breyst —
heldur hvaða kerfi í líkamanum eru farin að stjórna orku, bata og efnaskiptum.
Því þetta er ekki fast ástand.
Það er þjálfanlegt.
Og þegar við skiljum hvaða kerfi eru farin að stýra niðurstöðunum
verður leiðin fram á við líka skýrari.
Ef þetta hljómar kunnuglega gæti það breytt miklu fyrir þig að skilja hvað er raunverulega að gerast í líkamanum - og við byrjum einmitt þar á vinnustofunni á fimmtudaginn.
Hlakka til að sjá þig
Jóna

